Ráðgjöf og innleiðingar Unimaze Software sérhæfir sig í ráðgjöf og innleiðingu á rafrænum lausnum fyrir viðskiptakerfi. NánarLausnirUnimaze Software er hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar lausnir fyrir rafræn viðskipti fyrir viðskiptakerfi eins og Dynamics NAV. Nánar.

Fréttir

Íslandspóstur kaupir hlut í Sendill.is
01.11.2011

Íslandspóstur hefur fjárfest í hugbúnaðarfyrirtækinu Sendill.is, sem sérhæfir sig í lausnum og þjónustu við rafræna viðskiptaferla og skeytamiðlun.

Í fréttatilkynningu segir: „Alkunn er sú tæknilega þróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár með yfirfærslu viðskiptaskjala frá pappír yfir í rafræn skjöl.  Íslandspósti er umhugað um að fylgja þeirri þróun eftir og eru kaupin í Sendli.is liður í því.  Íslandspóstur telur mjög spennandi tíma framundan í rafrænum skjalasendingum og þar mun framtíð fyrirtækisins liggja hvað varðar dreifingu á viðskiptaskjölum. Í samræmi við það fjárfesti Íslandspóstur árið 2009 einnig í stóru og öflugu rafrænu dreifingar- og vistunarkerfi sem boðið verður upp á fyrir alla landsmenn á næstu mánuðum undir nafninu Mappan. 

Sendill.is sérhæfir sig í miðlun rafrænna reikninga og annarra viðskiptaskjala milli fyrirtækja og stofnana.  Fjölmargir aðilar nýta sér Miðlun Sendils til að miðla rafrænum reikningum, pöntunum, vörulistum, fylgiskjölum og fleira. Meðal notenda sem taka við rafrænum reikningum eru flestsveitarfélög höfuðborgarsvæðisins og allar opinberar stofnanir sem eru tilbúnar að taka á móti rafrænum reikningum auk 70 þúsund fyrirtækja og stofnana í Danmörku.  Sendill.is er íslenskt fyrirtæki og byggir alfarið á íslensku hugviti.“


Unimaze á lista yfir áhugaverðustu sprotafyrirtækin
19.09.2011

Unimaze Software er á lista yfir áhugaverðustu sprotafyrirtækin á Íslandi í tímariti Frjálsrar Verslunar sem fór í dreifingu í dag.

Frjáls Verslun tekur saman árlega lista yfir áhugaverðustu sprotafyrirtækin, en á síðasta ári var sérumfjöllun um Unimaze í blaðinu. Í blaðinu nú er fjallað um sprotaumhverfið á Íslandi og hvað einkennir góða frumkvöðla. Einnig er þar sérumfjöllun um erlenda frumkvöðla og innlend sprotafyrirtæki.


Heitum í dag sendill is Unimaze ehf
19.04.2011

Nafni félagsins var í dag breytt hjá Fyrirtækjaskrá RSK til að vera betur í samræmi við markaðssetningu okkar hérlendis og endurspegla betur stöðu okkar og hlutverk.

Eldra nafn félagsins Unimaze á Íslandi ehf. þótti ekki endurspegla nægjanlega vel þá staðreynd að við erum alíslenskt frumkvöðlafyrirtæki, né heldur markaðssetningu á þjónustu okkar undir vörumerkinu sendill.is.

Frá og með deginum í dag er lögskráð heiti félagsins sendill is Unimaze ehf. Erlend hjáheiti er óbreytt og vísar til þess að við erum hugbúnaðarhús Unimaze Software.

Vörumerkið Sendill, tilvísunin sendill.is og lógó Sendils munum við fyrst og fremst nota í markaðssetningu innanlands, á meðan að vörumerki og lógó ásamt nafninu Unimaze Software mun áfram verða notað í markaðssetningu okkar erlendis.


Unimaze opnar heimasíðu Sendils
27.10.2010

Unimaze setti í loftið fyrir rúmri viku nýja heimasíðu Sendils, http://www.sendill.is.

Sendill er skeytamiðlun, sem hefur verið í fullum rekstri frá því í byrjun ársins og kynnt er sem Dreifingarmiðstöð Sendils. Með henni geta rafrænir reikningar flætt frá einu fyrirtæki til annarra, pappírslaust, beint inn í bókhald. Þannig sparast mörg handtök og hægt er að fækka mistökum og ná umtalsverðri hagræðingu.

Unimaze hefur samið við bæði DK hugbúnað og Maritech um endursölu og þjónustu við sína viðskiptavini. Þá hefur verið gerður samningur meðal annars við Fjársýslu Ríkisins og Reykjavíkurborg svo opinberar stofnanir og öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geta móttekið rafræna reikninga.

Þessar stofnanir og sveitarfélög móttaka nokkurt magn reikninga frá stærstu birgjum. Hefur það þegar sparar þeim umtalsverða vinnu í bókhaldi. Skoðið heimasíðu Sendils eða líkið við Facebook síðuna okkar http://www.facebook.com/sendill.is.

Þá bjóðum við jafnframt upp á VefSendil, sem gerir mögulegt að útbúa reikninga og kreditnótur og senda rafrænt til viðskiptavina. Í sama kerfi er hægt að útbúa tímaskýrslur og umbreyta í reikninga. Við bjóðum upp á fría útgáfa af þessari lausn, sem við áætlum að setja í loftið nú í nóvember.


Ráðgjöf fyrir Evrópusambandið um rafræna reikninga
24.05.2010

Markús Guðmundsson var nýverið valinn af Staðlastofnun Evrópu (CEN), til að vinna sem ráðgjafi við að útfæra viðmiðunarreglur fyrir meðferð rafrænna reikninga innan Evrópusambandsins.

Verkefnið kemur m.a. inn á tæknileg, lagaleg og skattaleg atriði. Skrifað hefur verið undir samning um verkefnið og stendur það fram í nóvember 2011.


Kynning á PEPPOL ráðstefnu í Malmö
15.03.2010
PEPPOL ráðstefna, Malmö 9.-11. febrúar 2010

Stofnandi Unimaze, hélt kynningu á skeytamiðlunarlausn fyrirtækisins á PEPPOL ráðstefnu í Malmö þann 11. febrúar síðastliðinn og var fyrirlestrinum mjög vel tekið.

Þar var lausnamengi Unimaze kynnt og tengingar skeytamiðlunarlausnarinnar við NemHandel og PEPPOL samskiptanetin.

Óskað var eftir kynningu á lausnum fyrirtækisins eftir þátttökuna Unimaze á PEPPOL ráðstefnunni í Kaupmannahöfn í október síðastliðnum.


NemHandel í Danmörku
19.11.2009

Danir hafa náð góðum árangri með NemHandel og miðla nú af reynslu sinni til að rafrænir reikningar og önnur rafræn skjöl nái til 23 milljóna lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu.

Sjá neðangreinda kynningu á því hagræði sem Danir hafa náð.

Við hjá Unimaze Software erum virkir þáttakendur í staðlastarfi og bjóðum upp á lausnir sem eru í 100% samræmi við evrópska og alþjóðlega staðla.



Geta Íslendingar sparað 11 milljarða með rafrænum innkaupum?
15.09.2009

Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins flutti ræðu á aðalfundi ICEPRO í sumar. Hann vitnar í skýrslu Capgemini Consulting frá haustinu 2007, en þar "er ávinningur af upptöku rafrænna innkaupa áætlaður nema 0,8% af VLF í besta falli. Ef sama gildir á Íslandi samsvarar það 11 milljörðum króna" segir Hannes í ræðu sinni.

Ræðu Hannesar eru gerð góð skil á vef Samtaka Atvinnulífsins. Greinin nefnist "Bættur hagur með rafrænum viðskiptum" og er að finna á http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/4551.

Þessi grein birtist í fréttabréfi ICEPRO í dag.


Innheimtulausnir
30.04.2009

Unimaze Software hefur í samstarfi við Alskil innheimtuþjónustu þróað kerfi fyrir kröfuhafa í Dynamics NAV, sem gerir kröfuhöfum kleyft að stofna kröfur beint frá viðskiptakerfinu. Með beintengingu er unnt að fylgjast með stöðu krafna dag frá degi, bóka greiddar kröfur, breyta kröfum og fella niður.

Reikningar, sem uppfylla NES Profile 4, Basic Invoice Only eru skrifaðir út úr kerfinu og eru þeir birtir greiðendum með kröfunum. Kerfið var þróað af Unimaze Software ofan á ebManager NAV pakkalausnina og er eitt dæmi um það hvernig þjónustuaðilar geta nýtt sér hugbúnaðinn. Kerfið styður Dynamics NAV ásamt eldri útgáfum Navision Financials og Navison Attain.

Nú í haust var kerfið sett upp hjá Vatnsvirkjanum og nú nýlega hjá Point og Hreyfingu. Að sögn eins af kröfuhöfunum hefur tilkoma kerfisins gert það að verkum að greiðslur skila sér inn betur og hraðar og eitt stöðugildi á skrifstofu hefur verið unnt að færa til, þar sem áður var skrifstofan undirlögð í 10-12 tíma við prentun reikninga og í 3-4 daga við að setja reikninga í umslög.


Nýir endursöluaðilar á Spáni og í Noregi
04.04.2009

Í marsmánuði gengu tveir nýir endursöluaðilar frá samstarfssamningi við Unimaze Software.

Þetta eru Columbus IT í Barcelona og C/Vision AS í Bergen, sem munu bjóða ebManager NAV lausnina til Dynamics NAV viðskiptavina sinna í Noregi og Spáni, til að hjálpa þeim að standa í rafrænum viðskiptum (B2B).

Við bjóðum þessa nýju samstarfsaðila velkomna í samstarf og hlökkum til að starfa með þeim í framtíðinni.


Greinar

Rafrænir reikningar: Tækifæri til hagræðingar
30.06.2008
Bergþór Skúlason
Þórhildur Hansdóttir Jetzek

Rafræn viðskipti milli fyrirtækja (B2B) hafa lengi verið við lýði en hingað til hafa þau mest verið notuð af litlum hópi stórra fyrirtækja á sviði verslunar og vörudreifingar sem hafa fjárhagslega getu til að fjárfesta í dýrum kerfum og tíma til innleiðingar. Í dag er hins vegar að verða til tækni sem smærri fyrirtæki ...


English Icelandic