Ný útgáfa ebComposer UBL
28.09.2008
ebComposer UBL útgáfa 1.2 kom út í síðustu viku. Nokkrar breytingar miðuðu að því að styðja betur við NES umgjarðirnar, en engin alvarleg villa hefur komið fram frá því að síðasta útgáfa var gefin út.
Breytingasöguna má finna á atvikavefnum okkar.
Ný útgáfa ebComposer UBL
28.09.2008
ebComposer UBL útgáfa 1.2 kom út í síðustu viku. Nokkrar breytingar miðuðu að því að styðja betur við NES umgjarðirnar, en engin alvarleg villa hefur komið fram frá því að síðasta útgáfa var gefin út.
Breytingasöguna má finna á atvikavefnum okkar.
ISV samstarfsaðili Microsoft
02.06.2008
Fyrr á þessu ári gerði Unimaze Software samning við Microsoft um að gerast Independent Software Vendor hjá Microsoft (óháður hugbúnaðarframleiðandi) og lausnaraðili fyrir Microsoft Dynamics lausnir.
Samningurinn er hluti af stefnu Unimaze Software að bjóða hugbúnaðarlausnir fyrir rafræn viðskipti fyrir Dynamics bókhaldskerfi. Sem þáttur í þessari stefnu, er nú ebManager NAV lausnin skráð Dynamics NAV vara hjá Microsoft, sem þjónustaðilar Dynamics NAV á Íslandi geta boðið viðskiptavinum sínum.
Þökkum þátttökuna
10.04.2008
Við þökkum öllum þeim sem heiðruðu okkur á ráðstefnunni og námskeiðinu í gær með nærveru sinni. Tveir þátttakendur sem skildu eftir nafnspjöld munu fá afhenta bókina Document Engineering í næstu viku.
Fyrirlestrarnir munu birtast hér á vefnum innan skamms. Athugið að upplýsingar um ráðstefnuna eru nú komnar undir liðinn Viðburðir.

Aðstandendur ráðstefnunnar frá vinstri til hægri: Georg Birgisson Span, Friðbjörn Hólm Ólafsson Símanum, Örn Kaldalóns ICEPRO, Bergþór Skúlason Fjársýslu Ríkisins, Markús Guðmundsson Unimaze Software og Tim McGrath Document Engineering Services
Aðstandendur ráðstefnunnar
26.03.2008
Að ráðstefnunni koma eftirfarandi aðilar:
Nýr vefur og ráðstefna
23.03.2008
Í tilefni ráðstefnunnar og þess að rúmt ár er liðið síðan að enskur vefur Unimaze Software fór í loftið, fer nú íslenskur vefur okkar í loftið. Ætlunin er að hann verði til upplýsingar um fyrirtækið, vörur og þjónustur þess. Tæknilegt ítarefni og tæknilegar upplýsingar verða að sinni einvörðungu á enskum vef okkar.