Heildstæð lausn fyrir meðhöndlun rafrænna reikninga með Dynamics NAV. Þú getur nú skrifað út bókaða sölureikninga samkvæmt UBL 2.0 staðlinum og hinni samnorrænu viðskiptaumgjörð NES Profile 4 - Basic Invoice Only.
Einnig getur þú lesið inn rafræna reikninga samkvæmt sömu viðskiptaumgjörð sem innkaupareikinga og tengt þá við bókhaldsfærslur út frá birgja og vörunúmerum. Fullur stuðningur er við varpanir á kótum fyrir mælieiningar og skattflokka yfir í þá kóta sem notaðir eru í Dynamics NAV.
Þú getur verið komin(n) af stað með að skrifa og lesa út reikninga innan nokkurra klukkustunda frá því að leyfið er klippt og Dynamics NAV þjónustuaðili þinn getur auðveldlega samlagað pakkalausnina að þínum vinnuferlum og þörfum, t.a.m. með tengingu inn í samþykktarkerfi.
| Sem móttakandi reikninga nýtur þú: |
- Hagræðis af vinnusparnaði sem felst í því að þurfa ekki að handskrá reikninga, auk þess að koma í veg fyrir innsláttarvillur.
- Möguleikans á sjálfvirkri meðhöndlun reikninga, t.a.m. með tengingu inn í samþykktarkerfi eða sjálfvirka samþykkt reikninga út frá tilteknum reglum.
- Möguleikans á að nýta starfskrafta í önnur verk.
|
Sem sendandi reikninga nýtur þú:
|
- Þess að geta sent reikninga hraðar og oftar frá þér.
- Möguleikans á að stytta tímann sem tekur að fá greitt og bæta sjóðstreymið.
|
Kerfið styður útgáfu Navision 2.6E og hærri.