Unimaze setti í loftið fyrir rúmri viku nýja heimasíðu Sendils, http://www.sendill.is.
Sendill er skeytamiðlun, sem hefur verið í fullum rekstri frá því í byrjun ársins og kynnt er sem Dreifingarmiðstöð Sendils. Með henni geta rafrænir reikningar flætt frá einu fyrirtæki til annarra, pappírslaust, beint inn í bókhald. Þannig sparast mörg handtök og hægt er að fækka mistökum og ná umtalsverðri hagræðingu.
Unimaze hefur samið við bæði DK hugbúnað og Maritech um endursölu og þjónustu við sína viðskiptavini. Þá hefur verið gerður samningur meðal annars við Fjársýslu Ríkisins og Reykjavíkurborg svo opinberar stofnanir og öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geta móttekið rafræna reikninga.
Þessar stofnanir og sveitarfélög móttaka nokkurt magn reikninga frá stærstu birgjum. Hefur það þegar sparar þeim umtalsverða vinnu í bókhaldi. Skoðið heimasíðu Sendils eða líkið við Facebook síðuna okkar http://www.facebook.com/sendill.is.
Þá bjóðum við jafnframt upp á VefSendil, sem gerir mögulegt að útbúa reikninga og kreditnótur og senda rafrænt til viðskiptavina. Í sama kerfi er hægt að útbúa tímaskýrslur og umbreyta í reikninga. Við bjóðum upp á fría útgáfa af þessari lausn, sem við áætlum að setja í loftið nú í nóvember.