Fyrirlesarar

Tim McGrath

Tim McGrath, Document Engineering Services

Tim McGrath er framkvæmdarstjóri og einn helsti ráðgjafi Document Engineering Services, sem eru alþjóðleg samtök ráðgjafa sem styðja við bak samhæfni viðskiptakerfa með notkun opinna staðla (supporting universal interoperability through the use of open standards).

Tim var virkur þátttakandi í þróun ISO 15000 (ebXML) staðlanna, þar sem hann leiddi teymi sem sá um gæðarýni milli ársins 2000 og 2002, þegar ebXML vinnan fór í gang og þá sat hann einnig í stýrihópi.

Árið 2005 gaf hann út (ásamt Robert J. Glushko) bókina "Document Engineering: Designing Documents for Business Informatics and Web Services", sem gefin var út af MIT Press. Bókin samhæfir andstæðar hugmyndir er varða greiningu upplýsinga og kerfa, rafrænnar útgáfu, greiningu viðskiptaferla og tölvunotkun í þeim tilgangi að hönnuð skjöl og ferlar séu vitrænir því fólki og þeim kerfum sem þurfa að nota þau.

Síðan í júlí 2005 hefur Tim verið varaformaður tækninefndar um Universal Business Language (UBL) hjá OASIS samtökunum. Hann tengir einnig saman vinnu UBL og UN/CEFACT.

Síðastliðna 18 mánuði hefur Tim farið vítt og breitt um Evrópu og Asíu við að koma á framfæri og kenna UBL og aðferðafræði þá sem hann kennir við Document Engineering.

Markús Guðmundsson

Markús Guðmundsson, Unimaze Software

Markús Guðmundsson er ráðgjafi Document Engineering Services með yfir þrettán ára reynslu í hugbúnaðarþróun. Hann er sérfræðingur í högun hugbúnaðarkerfia, nettækni og stýrikerfum og hefur tekið þátt í og leitt ýmis verkefni á því sviði. Sérsvið hans eru lausnir fyrir rafræn viðskipti í kringum viðskiptakerfi, Windows stýrikerfi og samþætting með Biztalk Server.

Markús hefur síðan 2006 verið virkur þáttakandi í vinnu ICEPRO í hinu samnorræna Northern European Subset samstarfi (NES) og nú CEN/BII innan Staðlaráðs Evrópu, en bæði þessi verkefni ganga út á að skilgreina rafræna viðskipteferla.

Markús rekur hugbúnaðarfyrirtækið Unimaze Software, sem veitir ráðgjöf fyrir rafræn viðskipti  og framleiðir pakkalausnir fyrir Dynamics NAV (Navision), sem auðvelda stórum sem smáum fyrirtækjum að eiga í rafrænum viðskiptum.

Friðbjörn Hólm Ólafsson

Friðbjörn Hólm Ólafsson MBA/BSc er með yfir 15 ára reynslu á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni. Hann hefur mikla reynslu af rafrænum viðskiptum og tók m.a. virkan þátt í uppbyggingu X.400/EDI mála á Íslandi ásamt því að hafa starfað með ICEPRO til fjölda ára. Hann hefur setið í ýmsum nefndum ICEPRO og nú síðast í NES (Northern European Subset) hópnum.

Á árunum 2003-2006 sá Friðbjörn um rekstur og þróun Span lausnarinnar hjá Span/Kögun sem með sínu brautryðjendastarfi hefur átt stóran þátt í því að ryðja braut XML skeytanotkunar á Íslandi.

Friðbjörn stýrir nú ráðgjafadeild hjá Símanum, sem veitir fyrirtækjum faglega ráðgjöf á sviði fjarskipta- og upplýsingatæknimála.

Samstarfsaðili

Span

Stuðningsaðilar


Síminn

Fjársýsla Ríkisins

ICEPRO


Document Engineering Services