Ráðgjöf og innleiðingar Unimaze Software sérhæfir sig í ráðgjöf og innleiðingu á rafrænum lausnum fyrir viðskiptakerfi. NánarLausnirUnimaze Software er hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar lausnir fyrir rafræn viðskipti fyrir viðskiptakerfi eins og Dynamics NAV. Nánar.

Fréttir

Tengjum saman fyrirtækin
12.10.2008
Fyrirtæki geta hagrætt umtalsvert í rekstri sínum með því að sjálfvirknivæða einstaka verkferla. Bæði er um að ræða beinan vinnusparnað og óbeinan sem felst í fækkun mannlegra mistaka og markvissari skráningum.

Við bjóðum nú upp á tækni sem gerir fyrirtækjum kleyft að skiptast á rafrænum skjölum á öruggan og áreiðanlegan hátt. Þannig geta fyrirtæki nú skipst á formbundnum rafrænum skjölum eins og reikningum, pöntunum, vörulistum og tiltekarbeiðnum jafnt sem öðrum óformbundnum skjölum, líkt og PDF, Word og Excel skjölum.

Fyrirtæki geta hagrætt umtalsvert í rekstri sínum með því að sjálfvirknivæða einstaka verkferla. Bæði er um að ræða beinan vinnusparnað og óbeinan sem felst í fækkun mannlegra mistaka, hraðari samskiptum og markvissari skráningum.

Tækið uppfyllir alþjóðlega staðla um skeytasamskipti og verður hægt að kaupa til eignar eða hafa í rekstrarleigu. Með þessari viðbót í vöruúrval okkar getum við nú boðið viðskiptavinum okkar upp á rafrænar lausnir frá bókhaldi í bókhald. Nánari upplýsingar.

Ný útgáfa ebComposer UBL
28.09.2008
ebComposer UBL útgáfa 1.2 kom út í síðustu viku. Nokkrar breytingar miðuðu að því að styðja betur við NES umgjarðirnar, en engin alvarleg villa hefur komið fram frá því að síðasta útgáfa var gefin út. Breytingasöguna má finna á atvikavefnum okkar.

ISV samstarfsaðili Microsoft
02.06.2008
Microsoft Dynamics

Fyrr á þessu ári gerði Unimaze Software samning við Microsoft um að gerast Independent Software Vendor hjá Microsoft (óháður hugbúnaðarframleiðandi) og lausnaraðili fyrir Microsoft Dynamics lausnir.

Samningurinn er hluti af stefnu Unimaze Software að bjóða hugbúnaðarlausnir fyrir rafræn viðskipti fyrir Dynamics bókhaldskerfi. Sem þáttur í þessari stefnu, er nú ebManager NAV lausnin skráð Dynamics NAV vara hjá Microsoft, sem þjónustaðilar Dynamics NAV á Íslandi geta boðið viðskiptavinum sínum.


Þökkum þátttökuna
10.04.2008

Við þökkum öllum þeim sem heiðruðu okkur á ráðstefnunni og námskeiðinu í gær með nærveru sinni. Tveir þátttakendur sem skildu eftir nafnspjöld munu fá afhenta bókina Document Engineering í næstu viku.

Fyrirlestrarnir munu birtast hér á vefnum innan skamms. Athugið að upplýsingar um ráðstefnuna eru nú komnar undir liðinn Viðburðir.

Aðstandendur ráðstefnunnarAðstandendur  ráðstefnunnar frá vinstri til hægri: Georg Birgisson Span, Friðbjörn Hólm Ólafsson Símanum, Örn Kaldalóns ICEPRO, Bergþór Skúlason Fjársýslu Ríkisins, Markús Guðmundsson Unimaze Software og Tim McGrath Document Engineering Services

Aðstandendur ráðstefnunnar
26.03.2008
Að ráðstefnunni koma eftirfarandi aðilar:

Aðstandendur ráðstefnunnar

Nýr vefur og ráðstefna
23.03.2008

 

Horft til framtíðar
Í tilefni ráðstefnunnar og þess að rúmt ár er liðið síðan að enskur vefur Unimaze Software fór í loftið, fer nú íslenskur vefur okkar í loftið. Ætlunin er að hann verði til upplýsingar um fyrirtækið, vörur og þjónustur þess. Tæknilegt ítarefni og tæknilegar upplýsingar verða að sinni einvörðungu á enskum vef okkar.

 


Greinar

Rafrænir reikningar: Tækifæri til hagræðingar
30.06.2008
Bergþór Skúlason
Þórhildur Hansdóttir Jetzek

Rafræn viðskipti milli fyrirtækja (B2B) hafa lengi verið við lýði en hingað til hafa þau mest verið notuð af litlum hópi stórra fyrirtækja á sviði verslunar og vörudreifingar sem hafa fjárhagslega getu til að fjárfesta í dýrum kerfum og tíma til innleiðingar. Í dag er hins vegar að verða til tækni sem smærri fyrirtæki ...