Unimaze Software leggur mikla áherslu á að búa til gæðahugbúnað fyrir lítil sem stór fyrirtæki til að auðvelda þeim að eiga í rafrænum viðskiptum.
Markmið okkar eru að búa til hugbúnaðarlausnir sem hafa mikið gildi fyrir endanotendur og hugbúnaðaraðila þar sem við einbeitum okkur að lausnum fyrir rafræn viðskiptaskjöl, viðskiptaferla og dreifingu rafrænna viðskiptaskjala.
Við bjóðum upp á eftirtaldar lausnir:
ebManager NAV
ebManager NAV er heildstæð lausn fyrir meðhöndlun rafrænna reikninga í Dynamics NAV. Skrifaðu út úr Navision kerfinu þínu bókaða sölureikninga og lestu inn innkaupareikningana sjálfvirkt. Kerfið vinnur beint ofan á grunnkerfi í Navision og er tilbúið til notkunar. Þjónustuaðili þinn getur auk þess auðveldlega aðlagað lausnina að þínum verkferlum.
Sjáðu hér nánari upplýsingar um ebManager NAV og sjálfvirka meðhöndlun rafrænna reikninga.
ebComposer UBL
ebComposer UBL er lausn sérstaklega sniðin að forriturum og auðveldar þeim til muna að vinna með rafræn viðskiptaskjöl.
Lausnir styður m.a. við forritun í Microsoft .NET og Dynamics NAV (Navision) ásamt því að styðja við forritun á móti Dynamics AX, Concorde XAL og SAP.
Sjáðu nánari upplýsingar um ebComposer UBL á síðum okkar hér.
ebMapper (fyrir Genericode)
ebMapper er sérstaklega hugsaður fyrir kerfisfræðinga, tæknimenn og forritara sem þurfa að vinna með kótalistaskrár. Kótalistaskrár innihalda leyfilega kóta fyrir rafræn skjöl, m.a. einingar fyrir stærðir og þyngdir, skattflokka, tollflokka o.fl. þess háttar.
Sjáðu nánari upplýsingar um ebMapper á innsíðum okkar.