Ráðgjöf

Ráðgjöf og þjónusta

Spiral


Unimaze Software er hugbúnaðarhús á Íslandi sem sérhæfir sig í rafrænum viðskiptum og þekkingu á stöðlum fyrir framsetningu rafrænna viðskiptaskjala og dreifingu og meðhöndlun viðskiptaskeyta.

Unimaze Software var stofnað árið 2003 með það að markmiði að þróa hugbúnað og veita þjónustu til að auðvelda rafræn viðskipti, gera þau hagstæðari og hjálpa til við að ná meiri útbreiðslu heldur en áður hafði þekkst í rafrænum viðskiptum með EDI tækninni, sem að mjög litlu leyti hafði náð til lítilla og meðalstórra fyrirrtækja.

Með því að nýta sérþekkingu okkar og byggja á pakkalausnum okkar, teljum við okkur vera í aðstöðu til að geta leyst verkefni á þessu sviði bæði betur og á hagstæðari máta en aðrir.

Meðal þjónustu- og ráðgjafarverkefna sem Unimaze Software hefur leyst eru:
  • Verkefnastjórnun, hönnun og gæðastýring við innleiðingu rafrænna viðskipta.
  • Greiningarvinna vegna hugbúnaðarverkefna, nýsmíði hugbúnaðarkerfa og vefkerfa.
  • Vinna við samþættingu hugbúnaðarkerfa.
  • Vinna við varpanir milli skeytastaðla t.a.m. EDIFACT og UBL 2.0
  • Ráðgjöf í tengslum við dreifingu viðskiptaskjala.
  • Forritun hugbúnaðarlausna.
Lögð hefur verið sérstök áhersla á vinnu með þjónustuaðilum viðskiptakerfa við að:
  • Aðlaga okkar lausnir að sérkerfum þeirra
  • Aðlaga okkar lausnir að kerfum viðskiptavina þeirra
  • Veita ráðgjöf við nýsmíði kerfa sem byggja á rafrænum viðskiptum
  • Þjónusta okkar hugbúnað