Fræðsluráðstefnan Sjálfvirkni í viðskiptum var haldin á Grand Hótel miðvikudaginn 9. apríl 2008.
Gestafyrirlesari er Tim McGrath, heimsþekktur sérfræðingur á sviði rafrænna viðskipta og einn af aðal hönnuðum UBL skeytastaðalsins. Hann mun fjalla um staðla fyrir rafræn skjöl og viðfangsefni verkefna í kringum rafræn viðskipti.
Aðrir fyrirlesarar munu fjalla um samræmda samevrópska viðskiptaferla og miðlun rafrænna skjala með sérstakri áherslu á rafræna reikninga.
Efni ráðstefnunnar verður viðskiptalegs eðlis og höfðar til notenda rafrænna viðskipta.
Boðið verður upp á morgunsnarl við upphaf ráðstefnunnar. Verð fyrir ráðstefnuna er 5.900 kr. á mann með sköttum.
Síðdegis þennan sama dag (kl. 13:00-17:00) mun Tim McGrath bjóða upp á námskeiðið Composing Meaningful Documents with UBL, en námskeið þetta er einkum miðað að kerfisfræðingum og forriturum sem útfæra lausnir með rafrænum skjölum.