Ráðstefna

Sjálfvirkni í viðskiptum

Fræðsluráðstefnan Sjálfvirkni í viðskiptum var haldin á Grand Hótel miðvikudaginn 9. apríl 2008. Fyrirlestrana er að finna á niðurhalssíðum. Gestafyrirlesari er Tim McGrath, heimsþekktur sérfræðingur á sviði rafrænna viðskipta og einn af aðal hönnuðum UBL skeytastaðalsins. Hann mun fjalla um staðla fyrir rafræn skjöl og viðfangsefni verkefna í kringum rafræn viðskipti. Aðrir fyrirlesarar munu fjalla um samræmda samevrópska viðskiptaferla og miðlun rafrænna skjala með sérstakri áherslu á rafræna reikninga. Efni ráðstefnunnar verður viðskiptalegs eðlis og höfðar til notenda rafrænna viðskipta. Boðið verður upp á morgunsnarl við upphaf ráðstefnunnar. Verð fyrir ráðstefnuna er 5.900 kr. á mann með sköttum. Síðdegis þennan sama dag (kl. 13:00-17:00) mun Tim McGrath bjóða upp á námskeiðið Composing Meaningful Documents with UBL, en námskeið þetta er einkum miðað að kerfisfræðingum og forriturum sem útfæra lausnir með rafrænum skjölum. Dagskrá ráðstefnunnar Nánari upplýsingar um námskeið

Samstarfsaðili

Span

Stuðningsaðilar


Síminn

Fjársýsla Ríkisins

ICEPRO


Document Engineering Services

English Icelandic