Stefna okkar

Enter Title

Unimaze á Íslandi var stofnað árið 2003 með það að markmiði að þróa hugbúnað og veita þjónustu til að auðvelda rafræn viðskipti, gera þau hagstæðari og hjálpa til við að ná meiri útbreiðslu heldur en áður hafði þekkst í rafrænum viðskiptum með EDI tækninni, sem að mjög litlu leyti hafði náð til lítilla og meðalstórra fyrirrtækja.

Sérfræðingar okkar hafa víðtæka þekkingu á hinum rafrænu stöðlum ebXML og UBL 2.0 og hafa unnið náið með ICEPRO, Samstarfi um rafræn viðskipti og NES hópsins við samnorræna skilgreiningu á notkun UBL 2.0 staðalsins.

Við trúum því að nauðsynlegt sé að fylgja alþjóðlegum stöðlum til að ná því markmiði að gera rafræn viðskipti almennari og þess vegna styðjum við UBL, NES og ebXML staðlanna og mælum með notkun þeirra.