Um okkur

Rafræn viðskipti með alþjóðlegum stöðlum

Unimaze á Íslandi var stofnað árið 2003 með það að markmiði að þróa hugbúnað og veita þjónustu til að auðvelda rafræn viðskipti, gera þau hagstæðari og hjálpa til við að ná meiri útbreiðslu heldur en áður hafði þekkst í rafrænum viðskiptum með EDI tækninni, sem að mjög litlu leyti hafði náð til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Sérfræðingar okkar hafa víðtæka þekkingu á hinum rafrænu stöðlum ebXML og UBL 2.0 og hafa unnið náið með ICEPRO, Samstarfi um rafræn viðskipti og NES hópsins við samnorræna skilgreiningu á notkun UBL 2.0 staðalsins.

Við trúum því að nauðsynlegt sé að fylgja alþjóðlegum stöðlum til að ná því markmiði að gera rafræn viðskipti almennari og þess vegna styðjum við UBL, NES og ebXML staðlanna og mælum með notkun þeirra.

  • ebManager NAV vara okkar er heildstæð lausn fyrir meðhöndlun rafrænna reikninga í Dynamics NAV.
  • ebComposer UBL vara okkar er sérhönnuð fyrir þróun í .NET eða Navision og Axapta viðskiptakerfunum.

 Frekari upplýsingar um vörur okkar og tengda hluti, m.a. um NES og UBL er að finna hér á síðunum okkar, bæði á íslensku og á ensku.

 


 

Ef frekari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband í síma 588-7575 eða með tölvupósti.

Vörumerkið Unimaze® ásamt ebComposer, ebManager og ebMapper eru annað hvort skráð vörurmerki eða óskráð vörumerki Unimaze Software (Unimaze á Íslandi ehf).