Lausnir

UnimazeGo - Snjallforrit

Einfaldar notendum uppgjör á útlögðum kostnaði fyrir hönd fyrirtækis.

UnimazeGo er snjallforrit á síma sem einfaldar notendum að gera skil á útlögðum kostnaði eða notkun á fyrirtækjakortum.

UnimazeGo

UnimazeGo

UnimazeGo er lausn sem einfaldar og gerir umsýslu með útlögðum kostnaði skilvirkari og þægilegri. Með þessari snjöllu lausn geta notendur haldið utan um allar kvittanir og skilað af sér, óháð því hvort þeir borga með eigin korti eða fyrirtækjakorti.

Auðvelt er að tengja UnimazeGo við flest bókhaldskerfi á Íslandi og tími við innleiðingu er lítill sem engin.

UnimazeGo vinnur fullkomnlega með öðrum lausnum Unimaze s.s. Samþykktarkerfi, Digitizer og Skeytamiðlun. Auðvelt er að bæta við þessum lausnum hjá fyrirtækjum eða nýta þær betur með UnimazeGo snjallforritinu.

Hvernig virkar UnimazeGo?

Notandinn er að kaupa vöru eða þjónustu fyrir hönd atvinnurekanda, ýmist með eigin korti (útlagður kostnaður) eða með greiðslukorti atvinnurekanda. Hvort heldur sem er, þarf að halda utan um kvittanir. Þetta hefur verið hausverkur lengi en nú er lausnin komin með UnimazeGo.

Þetta gerist í nokkrum einföldum skrefum.

  • Notandi tekur mynd af kvittun
  • Í appinu þarf notandi að fylla út eftirfarandi: Útkýring, kostnaðarstöð, upphæð, gjalmiðil og verknúmer.
  • Senda kostnað
UnimazeGo - Nýr kostnaður.

Kostnaður fer þannig beint inn í viðkomandi bókhaldkefi með tengingu Unimaze Messenger þjónustu.

Jafnframt bíður Unimaze upp á Unimaze Approver samþykktarkerfið sem virkar fullkomlega með UnimazeGo. Einnig er vert að minnast á Unimaze Auto Coder sem lyklar sjálfkrafa reikninga og kvittanir sem berast fyrirtækjum.

App store: UnimazeGo

Google Play: UnimazeGo

Almenn ráðgjöf

Við leiðbeinum þér í gegnum heim rafrænna reikninga

Við tengjum þig við alþjóðlega rafræna reikninga

Við bjóðum upp á ókeypis ráðgjöf hjá Unimaze. Með því að bóka fund með okkur færðu allt umfang Unimaze vettvangsins, lausnirnar sem við bjóðum upp á og tæknilega ráðgjöf ef þess er óskað án skuldbindingar um að skrá þig hjá okkur. Fáðu ókeypis viðtalstíma í dag með því að bóka fund og fylla út formið á hlekknum hér að neðan.

Almenn rágjöf
  • Kostir rafrænna reikninga
  • Tæknileg ráðgjöf
  • Kynning á lausnum okkar