Á morgun fer fram morgunfundur á vegum Icepro, Staðlaráðs Íslands og Unimaze. Fundurinn ber yfirskriftina: „Skilvirkari útgáfa reikninga, aukið hagræði – Ísland í fararbroddi í Evrópu“.
Þar verður fjallað um ávinning og hagræði í tengslum við einföldun í viðskiptum á milli fyrirtækja. Hvernig rafrænir reikningar geta sparað stórum og smáum fyrirtækjum verulegar upphæðir – hver vill ekki vera með í því?
Ísland er í fararbroddi í Evrópu í innleiðingu á rafrænum reikningum en þó má enn gera töluvert betur og má reikna með að enn séu ca 20 milljónir reikninga í umferð sem hægt er að koma á rafrænt form. Þessi reikningar kosta þjóðarbúið gróft metið um 40 milljarða króna.
Þeir sem vilja kynna sér málið eru hvattir til að skipta alfarið yfir í rafræna reikninga, pantanir og aðrar lausnir sem auðvelda og einfalda sjálfvirkni, minnka villuhættu og aðra sóun.
Dagskrá fundarins:
- Inngangur – Einar Geir Jónsson, Unimaze
- Skiptir máli að uppfæra rafrænan reikning í nýjustu útgáfu (TS236)? Hvernig nýtist það best? – Markús Guðmundsson, Unimaze
- Staðan á Íslandi í dag – Bergljót Kristinsdóttir, Icepro
- Rafræn viðskipti, heilræði ráðgjafans – Davíð Stefán Guðmundsson, Deloitte
ICEPRO eru samtök um rafræn viðskipti á Íslandi. Samtökin voru stofnuð árið 1989 ásamt systursamtökum í öðrum Evrópulöndum. Tilgangurinn var að setja á fót stofnanir sem væru vettvangur fyrir samræmingu í rafrænum viðskiptum landa á milli. Til þess skyldi nota samræmda staðla og gagnasnið. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en tilgangurinn er enn hinn sami og þörfin engu minni.
Staðlaráð Íslands gefur út íslenska staðla og er vettvangur hagsmunaaðila til að vinna að stöðlun og notkun staðla á Íslandi. Ráðið starfar á grundvelli laga um stöðlun. Aðild að Staðlaráði hefur margvíslega kosti.
Staðlaráð selur íslenska staðla og staðla frá fjölmörgum staðlasamtökum, stendur fyrir námskeiðum og veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu um hvaðeina er lýtur að stöðlum og stöðlun.
Staðlaráð er fulltrúi Íslands í alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO og IEC og evrópsku staðlasamtökunum CEN, CENELEC og ETSI og þátttakandi í norrænu stöðlunarsamstarfi INSTA og NOREK.
Unimaze er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði sem býður upp á að senda og móttaka rafræn viðskiptaskjöl, svo sem reikninga, pantanir, greiðslukvittanir og fleira. Félagið leggur sig fram við að vera í fararbroddi þegar kemur að stöðlum, áreiðanleika og tæknilegum lausnum, svo sem sannreyningu, vottun og örugga auðkenningu. Unimaze er með starfstöðvar í þremur Evrópulöndum og viðskiptavini um allan heim.