Grein

Af hverju að velja Unimaze?

30. apríl 2025

Veldu Unimaze

Með hraðri stafrænni þróun og aukinni kröfu um rafræna reikninga er nauðsynlegt að fyrirtæki velji lausn sem ekki aðeins uppfyllir lagalegar skyldur í dag, heldur er einnig tilbúin fyrir framtíðina. Unimaze er leiðandi veitandi á sviði rafrænnar reikningagerðar þar sem við tryggjum samræmi, örugga gagnameðhöndlun og sjálfvirknivæðingu fyrir fyrirtæki af öllum stærðum.

Þekking og reynsla

Unimaze er rótgróið og áreiðanlegt hugbúnaðarfyrirtæki með sterka sérstöðu á sviði rafrænna viðskipta. Lausnir Unimaze eru byggðar á alþjóðlegum stöðlum og eru PEPPOL-vottaðar, sem tryggir örugga gagnamiðlun milli fyrirtækja og hins opinbera, bæði innanlands og á alþjóðavísu.

Lausnir Unimaze virka með öllum helstu bókhalds- og ERP kerfum, þar á meðal Business Central, SAP, Dynamics NAV og fleiri. Að auki býður fyrirtækið upp á sveigjanlega tengimöguleika í gegnum Unimaze API og Unimaze Cloud sem hentar jafnt stórum sem smáum rekstri. Fyrir þá sem þurfa fljótlega innleiðingu án flókinna aðgerða er einnig í boði skýjalausn sem hentar fyrir innskráningu í gegnum vefviðmót, án þess að þörf sé á sérstökum hugbúnaði.

Öryggi og persónuvernd

Unimaze er stolt af því að vera ISO 27001 vottað og uppfyllir allar GDPR kröfur. Allar upplýsingar sem Unimaze vinnur með eru dulkóðaðar bæði í flutningi og geymslu, með fjölþátta auðkenningu og gagnageymslu í traustum lögsögum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Við höfum skýrar viðbragðsáætlanir ef upp koma öryggisbrot eða gagnalekar og leggjum ríka áherslu á ábyrga meðferð persónuupplýsinga í samræmi við ströngustu kröfur evrópsks lagaumhverfis.

Öryggi er ekki eingöngu tæknilegt viðfangsefni hjá Unimaze heldur er það órjúfanlegur þáttur í hönnun og framkvæmd allra lausna okkar. Við höfum innleitt reglulegar áhættumatsferlar, aðgangsstýringar og úttektir á öryggisverkfærum. Við vinnum með traustum innviðaþjónustuaðilum eins og Microsoft Azure og Syndis sem tryggja öryggi okkar og viðskiptavina.

Lausnir

Unimaze býður upp á heildstæðar, öruggar og sveigjanlegar lausnir á sviði rafrænna viðskipta, hannaðar fyrir fyrirtæki og opinbera aðila sem vilja auka sjálfvirkni, samræmi og hagkvæmni þegar kemur að sendingu og móttöku rafrænna skjala. Hvort sem þú ert að senda eða taka á móti reikningum, pöntunum, kvittunum eða öðrum viðskiptaskjölum styður Unimaze við öll skref með ýmsum lausnum.

Lausnir Unimaze eru vel ígrundaðar og allar sinna þær mikilvægum verkefnum sem auðvelda annað hvort móttöku, skjölun eða sendingar á rafrænum skjölum og virka vel með hvor annarri. Digitizer breytir PDF reikningum í fullgilda rafræna reikninga. Supplier Portal auðveldar birgjum að móttaka rafræn skjöl frá þeim sem ekki eru með rafrænt bókhald. Approver er skilvirkt samþykktarkerfi reikninga og skjala. UnimazeGO hentar fyrirtækjum sem þurfa að halda utan um marga útgjaldaliði starfsfólks og verktaka, gert í gegnum notendavænt snjallsímaforrit.

Þjónusta og verð

Unimaze þjónustan er hönnuð með sveigjanleika og vöxt í huga. Hvort sem fyrirtækið þitt er að stíga fyrstu skrefin í rafrænni reikningagerð eða þegar komið með þroskað ferli, styður lausnin fjölda notenda, eininga og útibúa. Hún aðlagast auðveldlega nýjum skjalaformum, regluverki og breytingum í rekstrarumhverfi, án flókinna eða kostnaðarsamra innleiðinga.

Viðskiptavinir Unimaze njóta sérhæfðrar þjónustu og einstaklingsmiðaðrar ráðgjafar. Við bjóðum upp á skýra þjónustusamninga (SLA), tæknilegan stuðning og markvissa þjálfun, allt veitt af reyndum sérfræðingum sem þekkja bæði tæknina og viðskiptalegar þarfir.

Verðskrá Unimaze er sanngjörn og byggir á raunverulegri notkun, þá eru engin falin gjöld eða óvæntir kosntaðarliðir. Við leggjum áherslu á að sýna skýrt hvar ávinningurinn og virði Unimaze liggur í notkun en það er í tímasparnaði, fækkun villna og lægri rekstrarkostnaði fyrir viðskiptavini okkar.

Samantekt

Unimaze hefur allt sem þarf til að styðja við fyrirtæki af öllum stærðum sem vilja vinna að öruggum, sjálfvirkum og skilvirkum rafrænum viðskiptum. Með áratuga reynslu og góðum lausnum sem vinna saman og öflugu öryggis- og þjónustustigi, erum við traustur samstarfsaðili sem hjálpar þér að ná árangri í fjármála innviðum.

Við tökum flækjustigið úr ferlinu þannig að þú getur einbeitt þér að því sem skiptir máli, rekstrinum og vexti fyrirtækisins. Hvort sem þú þarft að taka á móti eða senda rafræna reikninga, tengjast innkaupakerfum opinberra aðila eða innleiða sjálfvirkni í reikningavinnslu, þá stendur Unimaze þétt við bakið á þér með tæknilega getu, þjónustulund og skýrar lausnir. Við erum alltaf opin fyrir samtali, hafðu samband og við leiðum þig í gegnum ferlið.

Bóka fund

Tengt efni

1. apríl 2016 | Grein

Samræmd ákvörðun um bókunarupplýsingar

31. mars 2025 | Grein

Viltu breyta PDF reikningum í rafræna reikninga hraðar?

11. júlí 2024 | Grein

Unimaze hefur hlotið gæðavottun samkvæmt ISO 27001 staðlinum 2025