Samstarfsaðilar og bókhaldskerfi

Tengingar við bókhalds- og viðskiptakerfi

Fullkomið hagræði með beintengingu

Með beintengingu við bókhald og önnur viðskiptakerfi nýtur þú mestrar hagræðingar.

Tenging við bókhalds- og viðskiptakerfi býður upp á fjölmarga kosti. Með beintengingu við bókhald og önnur viðskiptakerfi nýtur þú mestrar hagræðingar. Viðskiptaskjöl, svo sem pantanir, reikningar, kredit reikningar etc., flæða hratt út og inn í viðskiptakerfin án endurtekins innsláttar, vinnu við skönnun eða hættu á innsláttarvillum.

Rakning og eftirfylgni

Ferilskráin segir nákvæmlega til um stöðu skeyta, hvort og hvernig þau skiluðu sér. Ef eitthvað bregður út af lætur kerfið vita um leið. Fáðu aðgang að Unimaze. Ef þú vilt geyma afrit af öllum skeytum og skjölum lengur en almennt dugar fyrir miðlun, þá getum við geymt gögnin lengur fyrir þig en þessa tvo mánuði.

Sannreyning viðskiptareglna, upprunavottun og heilleiki

Við tryggjum að reikningurinn skilar sér alla leið inn í bókhaldið hjá þér án þess kostnaðar sem fylgir ranglega sniðnum reikningum. Við gerum ítrustu kröfur, svo innihald reikningsins verður að stemma og nauðsynleg gildi fyrir hendi. Við vottum hvaðan skeytið kom. Við getum gengið lengra og vottað hvaða einstaklingur, deild eða fyrirtæki sendi skjalið og að skjalið er upprunalegt og óbreytt. Það kemst enginn í gögnin þín, þau fara alltaf um örugga pípu hjá okkur, til okkar og frá okkur. Þarftu að passa upp á gögnin þín innanhúss hjá þér líka? Hafðu samband og við getum hjálpað

Staðlar og samskipti við ytri net

Skipta staðlar máli? Svo sannarlega, vissir þú að við erum tengdir við 70.000 fyrirtæki í Danmörku? Af hverju? Jú af því að við styðjum danska NemHandel staðalinn. Við tengjum okkur einnig við nokkra innlenda þjónustuaðila með nokkurs konar reikisamningum. Okkur er nokkurn veginn sama hvað við flytjum. Fyrir utan almenn viðskiptaskjöl getum við til dæmis flutt gögn á PDF sniði, Word, Excel, myndir eða hvaðeina – bara að það sé tölvutækt! Suma er auðveldara að ná í af því að þeir fylgja alþjóðlegum stöðlum eins og við. Við tengjum okkur líka við aðrar skeytagáttir ef það þjónar hagsmunum beggja.

Birtu viðhengi beint

Skoðaðu t.d. reikninga, tímaskýrslur, myndir eða önnur skjöl beint í bókhaldskerfi, samþykktarkerfi eða öðru viðskiptakerfi. Ekkert flakk milli kerfa, engin bið eftir gögnum eða leit að týndum skjölum.

Öflugir samstarfsaðilar

Við getum ekki verið bestir í öllu, þó við séum snillingar á sviði rafrænna viðskipta, þá eru það aðrir sem eru færastir í innleiðingum á bókhaldskerfum og öðrum viðskiptahugbúnaði. Við látum samstarfsaðila Unimaze um að þjónusta sín kerfi gagnvart dreifingarmiðstöðinni.

Lestu meira um samstarfsaðila Unimaze hér.

Yfirlit yfir tengingar Unimaze við bókhalds- og viðskiptakerfi

Er þitt bókhaldskerfi ekki á listanum?


Við erum alltaf að leita að nýjum samstarfsaðilum og erum sífellt að vinna að tengingum við ný bókhaldskerfi.
Hafðu samband og við aðstoðum þig að byrja innleiðingarferlið.

Gerast samstarfsaðili
Almenn ráðgjöf

Við leiðbeinum þér í gegnum heim rafrænna reikninga

Við tengjum þig við alþjóðlega rafræna reikninga

Við bjóðum upp á ókeypis ráðgjöf hjá Unimaze. Með því að bóka fund með okkur færðu allt umfang Unimaze vettvangsins, lausnirnar sem við bjóðum upp á og tæknilega ráðgjöf ef þess er óskað án skuldbindingar um að skrá þig hjá okkur. Fáðu ókeypis viðtalstíma í dag með því að bóka fund og fylla út formið á hlekknum hér að neðan.

Almenn rágjöf
  • Kostir rafrænna reikninga
  • Tæknileg ráðgjöf
  • Kynning á lausnum okkar